Karellen

Breyttar aðstæður fjölskyldu/barns

Nauðsynlegt er að tilkynna deildarstjóra breytingar á aðstæðum barns og fjölskyldu til dæmis veikindi, fjarveru foreldra, nýtt heimilisfang og eða annað sem hefur áhrif á líðan barns.

Einnig þarf að tilkynna breytingu á símanúmerum, netföngum, upphaf náms eða námslokum námsmanna ef foreldrar hafa verið í námi. Tilkynna breytta hjúskaparstöðu þar sem þessar aðstæður hafa áhrif á leikskólagjöld.

Foreldrar sem stunda viðurkennt nám þurfa að skila inn námsvottorði fyrir hverja önn og einstæðir foreldrar þurfa að skila inn vottorði um staðfestingu á búsetuformi á þjónustugátt Garðabæjar á heimasíðu Garðabæjar hér

© 2016 - 2024 Karellen