Karellen
news

Föstudagsfrétt 10.11.23

10. 11. 2023

Á mánudaginn fór rauði hópurinn út fyrir hádegi og guli hópurinn var í frjálsum leik inni á meðan. Eftir hádegi fór svo guli hópurinn út.

Á þriðjudaginn skellti rauði hópurinn sér í vettvangsferð og skemmtu sér ótrúlega vel. Guli hópurinn fór í lubbastund þar sem við lærðum um stafinn D.

Á miðvikudaginn var baráttudagurinn gegn einelti og mættu margir í litríkum fötum til að styðja við málefnið. Guli hópurinn fór út að leika fyrir hádegi og rauði fór þá í lubbastund og svo út eftir hádegi. Því miður féllu niður tímanir hjá Díönu.

Á fimmtudaginn fór guli hópurinn í vettvangsferð og rauði hópurinn út að leika eftir hádegi.

Í dag fór guli hópurinn í íþróttahúsið og við vorum svo öll inni fyrir hádegi að byrja að föndra fyrir jólin. Blær kíkti á okkur í samverustundina og var að minna okkur á að passa upp á að enginn verði skilin útundan. Allir skelltu sér út eftir hádegi í veðurblíðuna.

© 2016 - 2024 Karellen