Karellen
news

Dagur einhverfu

16. 04. 2021

Föstudaginn 9. apríl klæddumst við bláu til að minna á dag einhverfu og sýna þeim stuðning sem kljást við einhverfu.
Við hvetjum alla til að skoða fræðslumyndböndin um Dag og Maríu en þau má finna á www.blarapril.is - horfa á þau og spjalla saman um fjölbreytileikann - fræðast um einhverfu og sýna einhverfum stuðning og samstöðu.

Börn og starfsfólk í Krakkakoti tóku virkan þátt og klæddust bláu og Björk matráður bakaði kanelsnúða með kaffinu sem voru með bláu kremi í tilefni dagsins.

© 2016 - 2024 Karellen