350Föstudaginn 3. maí var hátíðisdagur í Krakkakoti en þá tóku börnin á móti pabba og mömmu og öðrum ættingjum í "Opið hús" og sýndu hluta af því sem þau höfðu verið að vinna að í vetur. Fjölmargir heimsóttu okkur þennan morgunn og gáfu sér tíma til að skoða allann skólan og verk barnanna. Við erum afar þakklát fyrir mætinguna, alltaf svo gaman að taka á móti gestum.