Karellen
news

Furðufiskar

30. 01. 2020

Við vorum svo heppin að pabbi tveggja barna í leikskólanum sem er sjómaður kom færandi hendi einn daginn með fullt af allskonar dýrum sem lifa í sjónum s.s þorsk, krabba, marhnút og fleiri sjávardýr.

Allar deildir fengu að skoða og þukla á þessum dýrum sjávarins. Á Heimalandi var svo unnið stórt listaverk með allskonar fiskum á sem heitir "Stóri sjór".

Við þökkum pabba Írisar Heklu og Viktors Ernis kærlega fyrir að færa okkur þessa frábæru gjöf.

© 2016 - 2024 Karellen